Hákon með Haukum næstu þrjú árin

Hákon hefur verið einn albesti leikmaður úrslitakeppninnar til þessa.
Hákon hefur verið einn albesti leikmaður úrslitakeppninnar til þessa.

Eyjamaðurinn Hákon Daði Styrmisson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Olís-deildarmeistara Hauka í handknattleik.

Hákon Daði hefur farið á kostum frá því að hann gekk í raðir Hauka á tímabilinu frá ÍBV og hefur raðað inn mörkunum fyrir Hafnarfjarðarliðið í úrslitakeppni Olís-deildarinnar.

Skoraði hann til að mynda yfir 10 mörk að meðaltali í leikjunum fjórum gegn ÍBV en samtals er kappinn kominn með 60 mörk í sjö leikjum í úrslitakeppinni. Hinir þrír voru á móti Akureyri.

Haukar eru komnir í úrslit og mæta Aftureldingu annað árið í röð. Haukar sópuðu Mosfellingum út í fyrra, 3:0.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert