Bjerringbro/Silkeborg varð í kvöld danskur meistari í handknattleik þrátt fyrir 26:25 tap fyrir Tvis Holstebro en þetta var síðari leikurinn í rimmunni. Bjerringbro/Silkeborg vann samanlagt 52:46.
Bjerringbro/Silkeborg vann fyrri leikinn 27:20 og því ljóst að Holstebro hefði þurft að vinna upp sjö marka forskot.
Sigurbergur Sveinsson leikur með Holstebro en hann var með fjögur mörk í kvöld. Egill Magnússon var hins vegar ekki í leikmannahópnum.
Sigurbergur gengur til liðs við ÍBV í sumar en hann samdi við félagið á dögunum.