„Átti að verja síðasta skotið“

Joan Canellas tryggði Spánverjunum sigurinn gegn Dönum í gærkvöld.
Joan Canellas tryggði Spánverjunum sigurinn gegn Dönum í gærkvöld. EPA

Danski markvörðurinn Jannick Green segist hafa átt að verja skot Joan Canellas þegar hann skoraði sigurmark Spánverja tveimur sekúndum fyrir leikslok þegar heimsmeistarar Spánverja höfðu betur gegn Dönum, 25:24, í átta liða úrslitunum á HM í Katar í gær.

„Þetta var hræðilega svekkjandi. Við náðum að jafna en Spánverjarnir tóku þá leikhlé og Canellas gerði vel. Hann var klókur en ég hefði átt að verja skot hans. En svona er þetta,“ sagði Green eftir leikinn en hann lék í marki Dana síðasta stundarfjórðunginn og leysti Niklas Landin af hólmi.

„Ég vissi að hann myndi skjóta þarna en boltinn fór undir fótinn. Ef boltinn hefði verið út við stöngina hefði ég varið,“ sagði Green sem leikur með þýska liðinu Magdeburg undir stjórn Geirs Sveinssonar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert