Dagur Kár: Nýtum það góða úr þessum leik

Dagur Kár Jónsson leikmaður Stjörnunnar fór á kostum fyrir sitt lið í kvöld en 29 stig hans dugðu hinsvegar ekki til sigurs að þessu sinni í Keflavíkinni, í Dominos-deildinni í körfuknattleik.

Miðað við spilamennsku Dags í kvöld þá er augljóst að drengurinn hefur nýtt sér sumarið vel og hann kemur sterkur til leiks í ár. Dagur játti því að þegar þessi lið mætast þá er alltaf mikil barátta og sagði einnig að Keflvíkingar hafi einfaldlega spilað aðeins betur en Stjarnan þegar öllu væri á botninn hvolft.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert