Með sterkan leik í Belgíu

Styrmir Snær Þrastarson átti góðan leik.
Styrmir Snær Þrastarson átti góðan leik. mbl.is/Kristinn Magnússon

Belfius Mons vann í kvöld heimasigur á Den Helder í sameiginlegri efstu deild Hollands og Belgíu í körfubolta. Urðu lokatölur 83:77.

Landsliðsmaðurinn Styrmir Snær Þrastarson átti góðan leik fyrir Belfius Mons, skoraði 19 stig, tók þrjú fráköst og gaf sex stoðsendingar á 28 mínútum.

Styrmir er á sínu fyrsta ári sem atvinnumaður og hefur leikið afar vel með Belfius Mons. Liðið er í fimmta sæti neðri hluta deildarinnar með þrjá sigra og eitt tap.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert