Hjónaband Depp á leið í hundana

Johnny Depp og Amber Heard á meðan allt lék í …
Johnny Depp og Amber Heard á meðan allt lék í lyndi. AFP

Kvikmyndastjarnan Johnny Depp er sögð standa í skilnaði við eiginkonu sína Amber Heard. Parið gifti sig fyrir fimmtán mánuðum en Heard hefur nú sótt um skilnað. Í dómsskjölum kemur fram að hún vísi til „ósættanlegs ágreinings“.

Depp og Heard kynntust við tökur á myndinni „Rommdagbókin“ árið 2011. Tuttugu og tveggja ára aldursmunur er á þeim. Depp er 52 ára en Heard er þrítug. Í dómsskjölum í tengslum við skilnaðinn kemur fram að þau hafi skilið að skiptum á sunnudag.

Skammt er síðan þau hjónin komu fyrir dómstóla. Heard lýsti sig seka um skjalafals í apríl eftir að hún hafði orðið uppvís að því að koma ólöglega til Ástralíu með tvo hunda.

Frétt BBC

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson