Skriðdrekarnir fara hvergi

Annar af skriðdrekunum.
Annar af skriðdrekunum. Wikipedia/Pedro Plassen Lopes

Stjórnvöld í Þýskalandi höfnuðu í dag áskorun frá tveimur þýskum dagblöðum, Bild og BZ, þess efnis að tveir rússneskir T-34 skriðdrekar frá tímum síðari heimsstyrjaldarinnar yrðu fjarlægðir. Skriðdrekarnir eru hluti af minnismerki í Berlín um fallna rússneska hermenn í orrustunni um borgina. 

Frá þessu greinir fréttaveitan AFP en mótmæli dagblaðanna fólust í undirskriftasöfnun og var beint að framgöngu Rússlands í Úkraínu þar sem rússneskir skriðdrekar ógnuðu landinu. Talsmaður Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, vísaði í samkomulag við Rússa frá árinu 1990 þar sem þýsk stjórnvöld skuldbundu sig til þess að viðhalda og vernda rússnesk minnismerki um stríðið í Þýskalandi.

Frétt mbl.is: Vilja losna við rússneska skriðdreka

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert