Farþegar MH17 jarðsettir

AFP

Útför sextán farþega sem voru um borð í MH17 þegar hún var skotin niður í austurhluta Úkraínu þann 17. júlí sl. fer fram þann 22. ágúst nk. Þjóðarsorg hefur verið lýst yfir þann dag í Malasíu.

Flogið verður sérstaklega með kistur fólksins og mun kóngur Malasíu, forsætisráðherra og aðrir embættismenn taka á móti kistunum. Þá verður mínútu löng þöng á alþjóðaflugvellinum í Kulala Lumpur.

Því næst verða kisturnar fluttar til ættingja fólksins þar sem farþegarnir verða lagðir til hvílu. Líkin eru af fimmtán malasísksum ríkisborgunum og einum hollenskum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert