Gæti þurft meiri efnahagsaðstoð

Petro Porósjenkó, forseti Úkraínu.
Petro Porósjenkó, forseti Úkraínu. AFP

Úkraína gæti þurft 19 milljarða evra að láni til að endurreisa efnahagslíf landsins til viðbótar við fyrri lánveitingar takist úkraínskum stjórnvöldum ekki að sigrast á aðskilnaðarsinnum í austurhluta þess fyrir lok þessa árs.

Fram kemur í frétt AFP að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi varað við þessu í dag. Sjóðurinn sagðist engu að síður ætla að afhenda Úkraínu aðra greiðslu efnahagsaðstoðar við landið sem er að upphæð 1,39 milljarðar dollara en í heildina er aðstoðin 17,1 milljarður dollara. Það sé gert þrátt fyrir mikla óvissu í landinu og að því gefnu að vestræn ríki séu reiðubúin að leggja fram viðbótaraðstoð gerist þess þörf.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert