Skiptust á að nauðga níu ára stúlku

Móðir stúlkunnar sagði í samtali við lögreglu að hún hefði …
Móðir stúlkunnar sagði í samtali við lögreglu að hún hefði fundið dóttur sína í miklu uppnámi og að kjóll hennar hefði verið fyrir ofan mitti.

Fjórir karlmenn á aldrinum 20 til 39 ára eru grunaðir um að hafa nauðgað níu ára stúlku í Utah í Bandaríkjunum. Móðir stúlkunnar var í heimsókn með hana hjá vinum í bænum Vernal og réðust mennirnir á stúlkuna á meðan móðir hennar fór út í bílskúr að neyta amfetamíns.

Atvikið átti sér stað þann 27. mars síðastliðinn og hefur vakið mikla reiði í bænum. Hefur þess meðal annars verið krafist að mennirnir verði hengdir.

Á meðan móðirin fór út í bílskúr komu mennirnir, fóru með stúlkuna í annað herbergi í húsinu og skipust á að nauðga henni í um hálftíma. Búið er að handtaka mennina og ákæra þá.

Þegar mennirnir höfðu lokið sér af fóru þeir aftur með stúlkuna í herbergið þar sem hún var áður og hótuðu að myrða hana ef hún segði einhverjum frá glæpnum. Móðir stúlkunnar sagði í samtali við lögreglu að hún hefði fundið dóttur sína í miklu uppnámi og að kjóll hennar hefði verið fyrir ofan mitti.

Mennirnir eru 20 ára, 26 ára, 29 ára og 36 ára. Þeir eiga yfir höfði sér lífstíðarfangelsi verði þeir fundnir sekir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert