6 metra djúp hola myndaðist í vegi

Holan að myndast í veginum.
Holan að myndast í veginum. Skjáskot af Youtube

Lögreglan í Kaliforníu hefur birt myndskeið af því þegar 6 metra djúp hola myndaðist á vegi í Madera. Atvikið átti sér stað á mánudag og myndaðist holan á miðjum veginum.

Lögreglan telur að holan hafi myndast í kjölfar mikill rigninga. Viðgerð er hafin og vegurinn er lokaður á meðan.

Engin slys hlutust af enda hafði lögreglan séð að vegurinn var orðinn laus í sér og hafði girt svæðið af.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert