Janet Jackson á von á sínu fyrsta barni

Jackson kom aðdáendum sínum á óvart er hún tilkynnti að …
Jackson kom aðdáendum sínum á óvart er hún tilkynnti að hún væri að undirbúa stofnun fjölskyldu. KARIM SAHIB

Söngkonan Janet Jackson á von á sínu fyrsta barni, en Jackson er sem var yngri systir söngvarans Michael Jackson er 49 ára.

Jackson kom aðdáendum sínum á óvart í síðasta mánuði er hún frestaði hljómleikaferð sinni um heiminn og tilkynnti að hún og maður hennar, Wissam Al Mana, væru að undirbúa stofnun fjölskyldu.

Söngkonan, sem verður fimmtug þann 16. maí nk. ræddi málið ekki frekar, en vefsíðurnar E og E! News hafa báðar greint frá þungun Jackson.

Ónefndur heimildamaður E! News sagði Jackson vera komin á fjórða mánuð og að hún hefði verið um tíma í meðferð hjá lækni sem sérhæfi sig í frjóvgunarmeðferðum.

Talsmaður söngkonunnar hefur ekki tjáð sig um fjölgunina, en Jackson sjálf birti í dag á samfélagsmiðlum af sér myndskeið að dansa undir myllumerkinu  #DammnBaby, sem útleggja má sem „Ansans barnið“.

Jackson hefur í gegnum tíðina haldið einkalífi sínu úr sviðsljósinu og tilkynnti fjölmiðlum t.a.m. ekki strax frá hjónabandi sínu og Al Mana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert