Sameiningu Hafnarfjarðar og Vatnsleysustrandarhrepps hafnað

Íbúar Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykktu tillögu um sameiningu sveitarfélagsins við Vatnsleysustrandarhrepp, en íbúar Vatnsleysustrandarhrepps höfnuðu henni.

Kjörsókn í Hafnarfirði var 14,1%. 86,6% voru fylgjandi sameiningu en 13,4% á móti. Í Vatnsleysustrandarhreppi var kjörsókn 75,2%. 31,6% kjósenda var fylgjandi sameiningu en 68,4% voru mófallnir sameiningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka