Tekist að hefta útbreiðslu eldsins

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF er að ljúka slökkvistörfum.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF er að ljúka slökkvistörfum. Af vef Landhelgisgæslunnar

Um 30 manns vinna nú við að slökkva sinueldana sem loga á Snæfellsnesi. Slökkvistörf ganga ekki nógu vel að sögn manna á staðnum en þó hefur tekist að hefta útbreiðsluna að mestu leyti. Enn logar þó glatt í túnum.

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, hefur verið notuð við slökkvistörf en hún er nú í sinni síðustu ferð í kvöld en endsneytið mun vera að klárast í þyrlunni.

Eldurinn kviknaði í túnum við bæinn Rauðkollsstaði á suðaustanverðu Snæfellsnesi fyrr í kvöld.

„Þetta gengur ekki alveg nógu vel en við erum að reyna að hefta frekari útbreiðslu,“ sagði slökkviliðsmaður á vakt sem mbl.is náði tali af. Hann sagðist búast við því að þeir yrðu að störfum eitthvað fram á nótt.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur boðist til að aðstoða. Þess er þó ekki talin þörf. Hins vegar hefur Landhelgisgæslan staðið í ströngu við slökkvistörfin og beitt til þess þyrlunni TF-LÍF, sem fyrr segir.

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni felst slökkvibúnaður þyrlunnar í slökkvifötu sem hengd er neðan í þyrluna, henni er svo dýft í vatn eða sjó og þannig fyllt. Fatan er síðan tæmd með því að rafknúinn loki í botni hennar er opnaður og vatnið gusast út. Hámarksburðargeta skjólunnar er um 2.100 lítrar en hægt er að minnka og auka vatnsmagnið í fjórum þrepum frá tæplega 1.500 lítrum upp í fyrrnefnda 2.100 lítra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert