Flytja höfuðstöðvarnar til Akureyrar

Höfuðstöðvar Fiskistofu verða fluttar til Akureyrar.
Höfuðstöðvar Fiskistofu verða fluttar til Akureyrar. Sigurður Bogi Sævarsson

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, kynnti í ríkisstjórn í morgun áform um að efla starfsemi Fiskistofu á Akureyri og flytja höfuðstöðvar stofnunarinnar þangað. Þetta kemur fram á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. 

Þar segir að flutningurinn sé í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, þar sem segir að „Mikilvægt sé að stuðla að fjölbreyttum atvinnutækifærum um allt land, m.a. með dreifingu opinberra starfa…“. Opinberar úttektir sýna að á síðustu árum hefur opinberum störfum fjölgað á höfuðborgarsvæðinu, meðan þeim fækkar á flestum stöðum á landsbyggðinni, segir í tilkynningu.   

Fiskistofa er með fimm starfstöðvar á landsbyggðinni: í Vestmannaeyjum, á Stykkishólmi, Ísafirði, Akureyri og Höfn í Hornarfiði, en höfuðstöðvarnar eru í Hafnarfirði. Breytingarnar snúa eingöngu að flutningi höfuðstöðvanna.

Tölvudeild Fiskistofu, sem rekin er sameiginlega með Hafrannsóknarstofnun, verður ekki flutt, auk þess sem reiknað er með að Fiskistofa verði með starfsstöð á höfuðborgarsvæðinu. Stefnt er að því að flutningum verði lokið í lok næsta árs.

Öllum núverandi starfsmönnum býðst að flytja með stofnuninni norður. Áætlað er að hluti af flutningi starfseminnar verði vegna starfsmannaveltu þannig að ráðningar verði fyrst og fremst á Akureyri.  Velji starfsmenn að segja upp í tengslum við þessar skipulagsbreytingar mun þeim bjóðast fagleg aðstoð við endurmenntun og atvinnuleit.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert