4,6% atvinnuleysi í júní

Í júní voru að jafnaði 195.400 manns á vinnumarkaði, samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Af þeim voru 186.300 starfandi og 9.000 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 85,3%, hlutfall starfandi 81,4% og atvinnuleysi var 4,6%. Samanburður mælinga í júní 2013 og 2014 sýnir að atvinnuþátttaka jókst um eitt prósentustig og hlutfall starfandi jókst um 2,5 prósentustig. Hlutfall atvinnulausra minnkaði á sama tíma um 1,8 prósentustig.

Í júní 2014 var atvinnuleysi á meðal 16-24 ára 6,8% á meðan það var 4,1% hjá 25 ára og eldri.

Þegar leiðrétt er fyrir árstíðasveiflum var fjöldi fólks á vinnumarkaði 187.300 í júní 2014 sem jafngildir 82,4% atvinnuþátttöku, sem er nánast sama tala og var í maí. Fjöldi atvinnulausra í júní var 9.700 og fjölgaði um 400 manns frá því í maí 2014. Hlutfall atvinnulausra var 5,2% í júní en var 4,9% í maí. Fjöldi starfandi fólks í júní var 177.600, eða 78,1%, en var 178.400 í maí. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu jókst atvinnuleysi um 0,3 prósentustig á milli mánaða og hlutfall starfandi minnkaði um 0,3 prósentustig.

Þegar leitni árstíðaleiðréttinga á vinnumarkaðstölum síðastliðinna 6 mánaða er skoðuð sést að aðeins hefur dregið úr hlutfalli og fjölda atvinnulausra á meðan hlutfall og fjöldi starfandi fólks eykst og fjöldi fólks utan vinnumarkaðar minnkað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert