Nota vinningsfé til bílkaupa

Lottó
Lottó

Hjón ein komu inn á skrifstofur Íslenskrar getspár til að láta vita að þau væru ein af fjórum miðaeigendum með allar tölur réttar síðastliðinn laugardag, þegar sjöfaldur Lottópottur fór  upp í tæpar 94 milljónir.

Í tilkynningu frá Íslenskri getspá segir að þau hafi sagt að á meðan eiginkonan horfði á útdráttinn með miðann í höndunum, þá kallaði hún spennt fram til bónda síns þegar þrír réttir voru komnir í hús, og svo fjórir og að lokum fimm réttar tölur. 

Hjónin höfðu á orði að þau hafi fundið fyrir dálitlu stressi með hvar þau ættu að geyma þennan dýrmæta pappír, sem var tíu raða sjálfvalsmiði.

Þar sem þau hafa verið bíllaus um hríð, þá verður þeirra fyrsta verk að fjárfesta í bifreið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert