Malbikað fyrir 690 milljónir

Alls verða settar 690 milljónir króna í malbiksframkvæmdir á vegum …
Alls verða settar 690 milljónir króna í malbiksframkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar í ár. Reykjavíkurborg

Áætlað er að verja 690 milljónum til malbiksframkvæmda í Reykjavík í ár og er það 250 milljón króna hækkun frá síðasta ári.

 Fjárhagsáætlun þessa árs gerði ráð fyrir 110 milljón króna hækkun og í borgarráði í dag var tillaga umhverfis- og skipulagsráðs um 150 milljón króna viðbótarframlag samþykkt.  Í greinargerð með tillögunni segir að  veðurfarslegar aðstæður í vetur hafi valdið miklu tjóni á gatnakerfinu, segir í tilkynningu.

Með viðbótarframlaginu sem samþykkt var í dag eru fjárframlög til malbikunar þau sömu og framlög voru árið 2008 að núvirði.

Starfsmenn Reykjavíkurborgar sinna tilfallandi viðhaldi og holufylla eftir þörfum eins og ávallt hefur verið gert. Vegfarendur eru hvattir til að láta vita af holum svo hægt sé að bregðast við. 

Nú í mars og apríl verður ástand gatna metið faglega og á grundvelli þess mats verður framkvæmdaáætlun fyrir malbikun gerð.

„Ending gatna fer eftir álagi á þær. Þannig er talið að minni húsagötur endist í 35 ár, fjölfarnari húsagötur í 30 ár, safngötur í 20 ár og tengibrautir í 12 ár. Rétt er að taka fram að viðhald og malbikun stofnbrauta er verkefni Vegagerðarinnar,“ segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert