Boða atkvæðagreiðslu um vinnustöðvun

Ef félagsmenn samþykkja verkfall þá skellur á allsherjarverkfall hér á …
Ef félagsmenn samþykkja verkfall þá skellur á allsherjarverkfall hér á landi þann 6. júní. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Félagsmenn í VR, aðildarfélögum Landssambands ísl. verzlunarmanna og Flóabandalagsins, þ.e. Eflingar, Hlífar og VSFK, hafa verið samningslausir í tvo mánuði og hafa félögin nú boðað  til atkvæðagreiðslu um verkföll á félagssvæðum sínum. Verði verkföll samþykkt hefjast aðgerðir fimmtudaginn 28. maí.

Í sameiginlegri tilkynningu kemur fram að félögin hafi undanfarna mánuði reynt að ná sátt við atvinnurekendur um grundvöll nýrra kjarasamninga en árangurinn hefur verið rýr. Öll stéttarfélögin vísuðu deilum sínum til ríkissáttasemjara þann 17. apríl síðastliðinn. Þrátt fyrir milligöngu hans hafa viðræður reynst árangurslausar og var þeim öllum slitið undir lok apríl. 

„Ákvörðun um vinnustöðvun er ekki auðveld og er verkfallsvopninu aldrei beitt nema í ítrustu neyð. En viðbrögð atvinnurekenda gagnvart sanngjörnum kröfum okkar eru slík að við eigum engra annarra kosta völ. Atvinnurekendur hafa ekki sýnt vilja til að koma viðræðum í þann farveg að þær skili árangri. Þær aðgerðir sem við greiðum nú atkvæði um eru þannig eina leið okkar til að knýja á um breytingar,“ segir í tilkynningu.

Sameiginlega hafa þessi félög sterkan málstað. Það er mat félaganna að stuðningur við fyrirhugaðar aðgerðir sé víðtækur og almennur meðal félagsmanna. Markmið okkar er ekki að valda tjóni, heldur leggja áherslu á þær kröfur að jafnræði ríki meðal launafólks í íslensku samfélagi.

Skipulag vinnustöðvana félaganna er með þeim hætti að dagana 28. maí til og með 5. júní verða tveggja daga verkföll í tilteknum atvinnugreinum á félagasvæði VR, LÍV og aðildarfélaga Flóans. Frá og með 6. júní hefst ótímabundið allsherjarverkfall.

Hér að neðan er birt yfirlit yfir skipulag aðgerðanna.

Hvenær ?

Hvar ?

28. maí og 29. maí

Hópbifreiðafyrirtæki - frá kl. 00:00 28. maí til kl. 24:00 29. maí

30. maí og 31. maí

Hótel, gististaðir og baðstaðir -  frá kl. 00:00 30. maí til kl. 24:00 31. maí

31. maí og 1. júní 

Flugafgreiðsla - frá kl. 00:00 31. maí til kl. 24:00 1. júní

2. júní og 3. júní

Skipafélög og matvöruverslanir - frá kl. 00:00 2. júní til kl. 24:00 3. júní

4. júní og 5. júní

Olíufélög - frá kl. 00:00 4. júní til kl. 24:00 5. júní

6. júní

Ótímabundið allsherjarverkfall hefst kl. 00:00 6. júní 2015

Á síðustu misserum hafa ríki og sveitarfélög markað nýja stefnu í kjaramálum sem veldur því að ójöfnuður hefur aukist.  Þessi stefna hefur valdið misvægi í kaupmætti hópa launafólks. Við þetta verður ekki unað.

Krafa okkar sem hér kynnum sameiginlega aðgerðir á vinnumarkaði er einföld; að kjör félagsmanna okkar verði leiðrétt. Við lögðum okkar af mörkum við gerð síðustu kjarasamninga og sýndum ábyrgð. Við öxlum hins vegar ekki ein ábyrgð á stöðugleika á vinnumarkaði. Það dugar skammt að lýsa yfir góðæri, ef ávinningar stöðugleika eiga einungis að falla í skaut  atvinnurekenda en launafólki verði einungis skammtaðar lágmarkshækkanir,“ segir í tilkynningu frá félögunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert