Taka flesta fæðingarorlofsdaga

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. mbl.is/Golli

Meðalaldur foreldra við fæðingu fyrsta barns hækkar stöðugt, dánartíðni vegna krabbameins á Norðurlöndunum er hærri hjá körlum en konum og taka íslenskir feður langflesta fæðingarorlofsdaga af körlum á Norðurlöndunum. Þetta og margt fleira má lesa út úr jafnréttisvísum Norrænu ráðherranefndarinnar.

Á vef Norrænu ráðherranefndarinnar eru aðgengilegar margvíslegar tölfræðiupplýsingar sem varpa ljósi á líf og aðstæður fólks á Norðurlöndunum og gera mögulegan samanburð milli landa.

Jafnréttisvísar eru hluti þessara upplýsinga en um þá segir á vef ráðherranefndarinnar:

„Jafnrétti kvenna og karla er grundvallargildi á Norðurlöndum. Söfnun og notkun tölfræðiupplýsinga um jafnrétti kynjanna er lykilþáttur í því að stuðla að jafnrétti kynjanna í samfélaginu. Samstarf Norðurlanda um jafnrétti kynjanna, meðal annars hvað varðar tölfræðiupplýsingar, hefur stuðlað að því að gera Norðurlönd að þeim heimshluta þar sem jafnrétti kynjanna er mest.“

Sem dæmi um jafnréttisvísa má nefna vísa sem varpa ljósi á heilsu karla og kvenna, menntun, atvinnuþátttöku, fjárhag og tekjur, fjölskyldu og umönnun, áhrif og völd, að því er fram kemur í frétt velferðarráðuneytisins.

Hlutur feðra í orlofi eykst

Ef skoðaðar eru til dæmis upplýsingar um fæðingarorlof kemur fram að fæðingarorlof á Norðurlöndunum er lengst í Svíþjóð en styst á Íslandi. Danmörk er eina landið þar sem ekki er sérstakur feðrakvóti og feðrakvótinn er lengstur á Íslandi. Feður á Íslandi og í Svíþjóð taka flesta fæðingarorlofsdaga. Hlutur feðra í fæðingarorlofi hefur aukist hjá öllum Norðurlandaþjóðunum og sömuleiðis fjöldi fæðingarorlofsdaga á hvert barn á árabilinu 2000 til 2013.

Meðalaldurinn hækkar mjög

Þá kemur fram að karlar og konur eignist börn síðar á ævinni en fyrri kynslóðir og meðalaldur við fæðingu fyrsta barns hækki stöðugt. Árið 1961 var meðalaldur íslenskra kvenna 22 ár þegar þær eignuðust sitt fyrsta barn en árið 2013 var meðalaldurinn rúm 27 ár. Meðalaldur íslenskra karla sem eignuðust sitt fyrsta barn var 30 ár árið 2013.

Íslenskir foreldrar eru að meðaltali nokkru yngri þegar þeir eignast sitt fyrsta barn en foreldrar annars staðar á Norðurlöndunum, líkt og jafnréttisvísarnir sýna.

Dánartíðni hærri hjá körlum

Í jafnréttisvísunum má m.a. skoða kyngreindar upplýsingar um lífslíkur við fæðingu, daglegar reykingar, dánartíðni vegna krabbameins og vegna sjúkdóma í blóðrásarkerfi, sjálfsvíg, fjarvistir frá vinnu vegna veikinda, fóstureyðingar o.fl. Þar kemur t.d. fram að á Norðurlöndunum veldur krabbamein um fjórðungi allra dauðsfalla og að dánartíðni er hærri hjá körlum en konum á Norðurlöndunum að Færeyjum og Grænlandi undanskildum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert