Áfram virkni en minni skjálftar

Katla.
Katla. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Frá miðnætti hafa fimmtán sinnum mælst jarðskjálftar við Kötlu, en allir skjálftarnir hafa verið undir 3 stigum. Öflugasti skjálftinn var 2,7 stig og var um þrjúleytið í nótt og þá hafa nokkrir af 2,0 stigum verið í nótt. 

Á síðustu tveimur sólarhringum hafa 344 skjálftar mælst við Mýrdalsjökul. Þar af hafa 9 verið yfir 3 að stærð og 29 á milli 2 og 3 stiga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert