Er svo óréttlátt og ósanngjarnt

Hæstiréttur Íslands.
Hæstiréttur Íslands. mbl.is/Golli

„Við höfum reynt að græða sárin sem gróa aldrei. Fréttirnar í gær sprengdu allt upp,“ sagði Bergur Þór Ingólfsson, faðir eins fórnarlamba Roberts Downey, í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun. Downey hefur fengið uppreist æru og þar af leiðandi fær hann lög­manns­rétt­indi sín á nýj­an leik.

Downey, sem áður hét Ró­bert Árni Hreiðars­son, var fyr­ir níu árum dæmd­ur í 3 ára fang­elsi fyr­ir kyn­ferðis­brot gegn fjór­um stúlk­um. Brot­in voru fram­in á ár­un­um 2005 og 2006. Ró­bert tældi þrjár af stúlk­un­um með blekk­ing­um og pen­inga­greiðslum til kyn­ferðismaka við sig, en þær voru þá 14 og 15 ára.

Bergur Þór Ingólfsson.
Bergur Þór Ingólfsson. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Hann komst í sam­band við stúlk­urn­ar í gegn­um netið og í flest­um til­vik­um sagðist hann vera tán­ings­pilt­ur. Greiddi hann einni stúlk­unni að minnsta kosti 32 þúsund krón­ur fyr­ir kyn­ferðismök í tvö skipti, sem áttu sér stað í bif­reið hans.

„Þetta er með ólíkindum, þetta er svo óréttlátt og ósanngjarnt að maður með þennan bakgrunn og svívirðilegu og ógeðslegu sögu fái að sinna þessum störfum,“ sagði Bergur en dóttir hans tjáði sig um málið á Facebook í gærkvöldi:

Skora á stjórnvöld

Hópur kvenna hefur birt áskorun til stjórnvalda, vegna náðunar og endurnýjunar lögmannsréttinda Roberts Downey. Eins og komið hefur fram fékk Downey uppreist æru en hann var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn fjórum stúlkum fyrir níu árum.

Áskorunin birtist á síðunni kthbavd.is (Konur þurfa bara að vera duglegri). Þar kemur fram að Downey hafi sýnt einbeittan brotavilja og hafi haldið uppteknum hætti eftir að honum varð kunnugt um að hann væri grunaður um kynferðisbrot gegn einum þolenda sinna.

Í dag hefur hann fengið uppreist æru frá forseta Íslands, að undirlagi innanríkisráðherra, og í kjölfarið endurheimti hann lögmannsréttindi sín, enda taldi Hæstiréttur ekki sannað að það væri varhugavert,“ stendur á síðunni.

„Við undirritaðar teljum óásættanlegt að Robert Downey hafi hlotið uppreist æru og skorum á dómsmálaráðherra, auk forseta Íslands, að endurskoða þá ákvörðun. Þá förum við fram á rökstuðning fyrir því að það teljist ekki varhugavert að maður, sem sýnt þykir að haldinn sé barnagirnd, fái aðgang að börnum í samskonar aðstæðum og börnin sem hann gerðist sekur um að misnota. Færa má rök fyrir að það brjóti í bága við 3. 19. auk 34. greinar Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem Ísland hefur lögfest. Að lokum óskum við eftir lista yfir alla þá einstaklinga sem hlotið hafa uppreist æru frá aldamótum, ásamt lýsingu á verklaginu sem viðhaft er við þær ákvarðanir.

Við köllum eindregið eftir stuðningi forseta Íslands og Alþingis til þess að fá fram tafarlausa endurskoðun á þessum vinnubrögðum. Við gerum þá kröfu að rökstuðningur við uppreistri æru verði ævinlega gerður opinber, málsgögn úr ráðuneyti verði aðgengileg og andmælafrestur undantekningalaust veittur.“ 

Virðingarfyllst,

Aldís Coquillon
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir
Hrafnhildur Hauksdóttir
Kristjana Ásbjörnsdóttir
María Lilja Þrastardóttir
Ósk Gunnlaugsdóttir
Sóley Tómasdóttir
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert