Ekki vera á ferðinni að nauðsynjalausu

Það mun rigna talsvert næsta sólarhringinn á Austurlandi.
Það mun rigna talsvert næsta sólarhringinn á Austurlandi. mbl.is/Rax

Lögreglan á Austurlandi brýnir fyrir fólki að vera ekki á ferðinni fyrir austan næsta sólarhringinn að nauðsynjalausu. Veðurspá gerir ráð fyrri óvenjumikilli úrkomu í landshlutanum.

Spáð er óvenjumikilli úrkomu sem byrjar í kvöld og nótt og eykst smám saman og nær hámarki í fyrramálið,“ segir í tilkynningu lögreglu.

Samfara svona mikilli rigningu megi búast við töluverðum vatnavöxtum í ám og lækjum auk þess sem aukin hætta sé á grjót- og skriðuföllum. Vegfarendum er bent á að kynna sér vel færð á vegum sem og veðurspá áður en haldið er af stað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert