Svandís undirritaði samning um loftslagsvænan landbúnað

Svandís Svavarsdóttir.
Svandís Svavarsdóttir. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra undirritaði í dag samning um verkefnið Loftslagsvænn landbúnaður. Meginmarkmið verkefnisins er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði og landnýtingu ásamt því að auka kolefnisbindingu í jarðvegi og gróðri.

Verkefnið byggir á samstarfi Landgræðslunnar, Matvælaráðuneytis, Ráðgjafarmiðstöð Landbúnaðarins, Skógræktarinnar og Umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytisins, að því er ráðuneytið greinir frá. 

Markmið samningsins er að efla verkefnið Loftslagsvænn landbúnaður á árinu 2022, auðvelda framkvæmd þess, bæta mat á árangri þátttakenda í verkefninu og undirbúa það fyrir frekari stækkun.

„Ljóst er að mesta losun gróðurhúsalofttegunda í landbúnaði má rekja til nautgripa- og sauðfjárbúa. Því er mikilvægt að auka rannsóknir og fræðslu fyrir þessar tvær búgreinar. Á árinu 2022 bættust 15 nautgripabændur við verkefnið, og verður unnið að því að fjölga þátttakendum á árinu 2023. Jafnframt er stefnt á að fjölga búgreinum í verkefninu og verður sem fyrr leitast eftir víðtæku samstarfi við bændur. Fulltrúar 52 búa taka þátt í verkefninu í dag,“ segir í tilkynningunni. 

„Þetta mikilvæga verkefni er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Það er því hvetjandi að finna þann áhuga sem bændur víða um land hafa sýnt þessu verkefni,“ er haft eftir Svandísi í tilkynningu.

„Settum loftslagsmarkmiðum verður ekki náð án víðtæks samstarfs allra greina. Fólk sem vinnur í íslenskum landbúnaði skilur mikilvægi loftslagsmála og vinnur að þeim af heilum hug.“

Hér má finna nánari upplýsingar um verkefnið Loftslagsvænn landbúnaður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert