Grunaðir um tengsl við skipulagða glæpastarfsemi

Kveikt var í bíl lögreglumanns í síðasta mánuði. Þeir sem …
Kveikt var í bíl lögreglumanns í síðasta mánuði. Þeir sem stóðu atlögunni að baki eru nú grunaðir um hafa tengsl við skipulagða glæpastarfsemi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Mennirnir sem kveiktu í bíl lögreglumanns í síðasta mánuði eru grunaðir um að hafa tengsl við skipulagða glæpastarfsemi. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari í samtali við mbl.is.

Ólafur segir sex hafa verið handtekna vegna rannsóknar héraðssaksóknara á íkveikjunni. Þrír eru grunaðir um hafa beina aðild að atlögunni og tveir um að hafa kveikt í bílnum sjálfum. Einum manni hefur verið sleppt úr haldi.

Ekkert gefið upp um þjóðerni

Ólafur gat ekki tjáð sig að svo stöddu um þjóðerni þeirra handteknu, en heimildir mbl.is herma að þeir séu ekki með íslenskt ríkisfang. 

Eins og mbl.is hefur fjallað um þá rannsakar héraðssak­sókn­ari Reykja­vík­ur hvort íkveikjan hafi verið fram­in í hefnd­ar­skyni vegna starfa viðkomandi lögreglumanns.

Rannsókn málsins er unnin í samstarfi við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu og ríkislögreglustjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert