Talið er að amfetamínneysla hafi valdið því að margir evruseðlar hafa hreinlega dottið í sundur, að því er þýska lögreglan tjáir tímaritinu Der Spiegel.
Súlfat sem notað er við framleiðslu á amfetamíninu kann að hafa myndað súlfatsýru þegar það blandaðist svita og hún hafi leyst upp seðlana eftir að þeim var rúllað upp til að sjúga amfetamínið í gegnum þá.
Frá þessu greinir fréttavefur BBC.
Um 1.500 evruseðlar með götum og rifum á hafa komið úr hraðbönkum í Þýskalandi, en mikið af amfetamíninu sem er í umferð þar í landi kemur frá Austur-Evrópu og í því er mikið súlfat.
Þýski seðlabankinn, Bundesbank, greindi frá því fyrr í mánuðinum að í sumar hafi fyrst orðið vart við evruseðla sem duttu í sundur af ókunnum ástæðum.