Björguðu konu sem ætlaði að taka eigið líf

HO

Lögreglu á Ítalíu tókst að bjarga lífi konu sem hafði skrifað á Facebook að hún ætlaði að fremja sjálfsvíg. Annar notandi á facebook sá skrif konunnar og lét lögreglu vita.

Konan hafði misst vinnuna og hafði neyðst til að flytja heim til foreldra sinna. Þetta fékk svo á hana að hún tók ákvörðun að taka eigið líf. Eftir að lögreglan fékk ábendingu um skrif konunnar hringdi lögreglumaður í hana og talaði við hana á meðan sjúkraflutningamenn flýttu sér til hennar. Þeir náðu til hennar í tæka tíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert