Ekkja lést við gröf eiginmanns síns er bifreið hennar rann yfir hana

76 ára kona lést í gær við gröf eiginmanns síns í kirkjugarði í Queens í New York, þegar bifreið hennar rann yfir hana. Konan skildi bílinn eftir í gír, að því er virðist, og gekk að gröf eiginmannsins en bíllinn fór hægt af stað og rann yfir konuna með fyrrgreindum afleiðingum, um 15 metrum frá gröfinni. Lögreglan telur að um slys hafi verið að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert