Eldur í torfkofa

Eldur kom upp í torfkofa á leikskólalóð við Steinahlíð í Reykjavík í kvöld. Mikinn reyk leggur frá torfi, mó og timbri sem í kofanum var, og að sögn slökkviliðsins var kölluð til grafa til að ryðja kofanum niður og róta í honum til að hægt væri að slökkva eldinn. Talið er víst að kveikt hafi verið í honum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert