Hvernig virkuðu sjóðirnir?

Allir þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna hafa lagt fram á Alþingi skýrslubeiðni til viðskiptaráðherra um peningamarkaðs- og skammtímasjóði. Þingmennirnir vilja m.a. vita hvaða reglur giltu um sjóðina, hvort þeir hafi fylgt fjárfestingarstefnu og hvort eigendur þeirra hafi haft hagsmuna að gæta við stjórn sjóðanna í aðdraganda bankahrunsins. Þá er spurt út í aðdraganda þeirra ákvarðana að endurfjármagna sjóðina og óskað eftir tillögum til úrbóta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert