Lögregla áminnir hlaupara

Lögregla vill að hlauparar fari varlega og séu með endurskinsmerki.
Lögregla vill að hlauparar fari varlega og séu með endurskinsmerki. mbl.is/Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að það hafi vakið athygli að eðlileg aðgæsla hlaupara og virðing fyrir umferðarlögum sé stundum lítil. Hún beinir þeim tilmælum til þeirra að hegða sér betur í umferðinni og nota endurskinsmerki.

Fjölmargir hlaupahópar eru starfræktir á höfuðborgarsvæðinu og þeim hefur raunar fjölgað mjög. „Áberandi hefur verið í vetur hversu endurskinsmerki eru lítið notuð hjá mörgum þessara hópa þó á ferð séu í myrkri á eða við umferðargötur. Stórhætta hefur skapast af þessum sökum,“ segir í tilkynningu frá lögreglu. 
 
Þá hafi það vakið athygli lögreglu að eðlileg aðgæsla hlaupara og virðing fyrir umferðarlögum sé á stundum lítil. „Þeir fara til að mynda óhikað yfir umferðargötur án þess að nota gangbrautir þó þær séu nærri og fara yfir á móti rauðu gangbrautarljósi,“ segir í tilkynningunni.
 
„Lögregla beinir þeim vinsamlegu tilmælum því til hlaupara sem við þessa lýsingu kannast; foreldra, afa, ömmur, frændur og frænkur, til að sýna gott fordæmi í umferð með því að nota endurskinsmerki og virða umferðarlög og reglur. Þannig stuðla þeir að eigin umferðaröryggi og annarra.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert