Glódís: Alla burði til að vera stórveldi

„Þetta er frábær tilfinning. Þetta var markmiðið hjá okkur í sumar og það er frábært að hafa náð því,“ sagði Glódís Perla Viggósdóttir miðvörður knattspyrnuliðs Stjörnunnar eftir að þriðji Íslandsmeistaratitill liðsins á fjórum árum var í höfn í dag.

„Það gekk mestallt upp. Við gerðum eitt jafntefli við Val og töpuðum fyrsta leik en annars spiluðum við bara mjög vel og gerðum okkar besta,“ sagði Glódís. Nánar er rætt við hana í meðfylgjandi myndbandi.

Glódís Perla fagnar með liðsfélögum sínum eftir að titillinn var …
Glódís Perla fagnar með liðsfélögum sínum eftir að titillinn var í höfn í dag. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert