Harpa: Ekkert nema stolt í dag

„Þetta er geðveikt lið og þetta er gríðarlega góður árangur sem við erum að fagna hérna í dag,“ sagði markadrottningin Harpa Þorsteinsdóttir eftir að hafa hampað Íslandsmeistaratitlinum í knattspyrnu í þriðja sinn með Stjörnunni. Harpa skoraði öll mörkin í 3:0-sigri á Aftureldingu í dag.

Harpa hefur skorað 27 mörk í sumar og er langmarkahæst í Pepsi-deildinni.

„Það er oft sá sem skorar mest sem fær mestu athyglina en við erum með gríðarlega góða leikmenn í öllum stöðum, eins og síðasti landsliðshópur sýndi. Við erum búin að auka gæðin í liðinu með hverju árinu,“ sagði Harpa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert