United og Moyes hafa náð samkomulagi

David Moyes.
David Moyes. AFP

Manchester United og David Moyes hafa náð samkomulagi í tengslum við starfslok Moyes hjá félaginu að því Samtök knattspyrnustjóra á Englandi og Manchester United greina frá því í dag.

Moyes var sem kunnugt er látinn taka poka sinn hjá Manchester United á þriðjudaginn eftir aðeins tíu mánuði í starfi en hann gerði sex ára samning við félagið í júlí á síðasta ári.

Moyes er ekki blankur eftir þessa 10 mánuði en að því er fram kemur í enska blaðinu Daily Mail fær hann 7 milljónir punda fyrir þann tíma sem hann stjórnaði United en sú upphæð jafngildir rúmlega 1,3 milljörðum íslenskra króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert