Liverpool endurheimti fimmta sætið

Ben Mee og Daniel Sturridge í baráttu í kvöld.
Ben Mee og Daniel Sturridge í baráttu í kvöld.

Liverpool komst á ný upp í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir sigur á Burnley, 2:0, í síðasta leik kvöldsins, og er liðið enn það eina sem ekki hefur tapað leik í deildinni á árinu.

Jordan Henderson fylgdi eftir góðri frammistöðu sinni gegn Manchester City um helgina og skoraði fallegt mark eftir hálftíma leik með skoti utan teigs. 1:0 í hálfleik.

Hann var svo arkitektinn af seinna markinu sem Daniel Sturridge skoraði með fínum skalla eftir sendingu hans í síðari hálfleik. Lokatölur 2:0 og Liverpool endurheimti því fimmta sæti deildarinnar sem Southampton hirti í gær. Liðið hefur 51 stig og er tveimur stigum á eftir Manchester United sem er í fjórða sætinu.

Fylgst var með gangi mála í ENSKA BOLT­AN­UM Í BEINNI hér á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert