Bjarni: Hefur verið auðvelt að spila gegn Arsenal

Í Vellinum á Símanum Sport í gær ræddu þeir Bjarni Þór Viðarsson, Gylfi Einarsson og Tómas Þór Þórðarson um lagleg skyndisóknarmörk Arsenal í 5:0-sigri á Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni á laugardag.

Arsenal var ekki búið að skora mikið úr opnum leik en skoraði þrjú mörk eftir skyndisóknir á laugardag.

„Þeir eru búnir að vera mjög staðir og auðvelt að spila á móti þeim,“ sagði Bjarni Þór og fannst allt annað að sjá til liðsins.

Umræðurnar má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert