Bjarni: Hann er ofboðslega góður

Kobbie Mainoo, 18 ára miðjumanni Manchester United, var hrósað í hástert í Vellinum á Símanum Sport í gær.

„Það er frábært fyrir United. Þrátt fyrir alla peningana og allt sem er eytt þarna þá eiga þeir bara svona strák. Hann er frábær.

Hann er ofboðslega góður á boltanum. Hann er 18 ára. Hann skilar sér líka alltaf við hliðina á Casemiro þannig að Casemiro er ekki einn að verjast,“ sagði Bjarni Guðjónsson.

Umræður hans, Margrétar Láru Viðarsdóttur og Tómasar Þórs Þórðarsonar um Mainoo má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert