Ronaldo vongóður um að ná leiknum við Bayern

Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. AFP

Portúgalinn Cristiano Ronaldo, besti fótboltamaður heims, er vongóður um að hann geti leikið með Real Madrid á þriðjudaginn þegar liðið mætir Evrópumeisturum Bayern München í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

Ronaldo hefur frá keppni síðan í byrjun mánaðarins en hann tognaði í leik á móti Dortmund í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Ronaldo sá sína menn vinna Barcelona í úrslitaleiknum um spænska konungsbikarinn í gær en hann segist vonast til að vera klár í slaginn á þriðjudaginn.

„Mér líður miklu betur og er hætt að finna fyrir verkjum,“ segir Ronaldo á vef Real Madrid. Ronaldo hefur skorað 41 mark í 45 leikjum með Madridarliðinu í öllum keppnum á leiktíðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert