Jóhann Berg tryggði Charlton sigur

Jóhann Berg Guðmundsson skoraði sigurmarkið í morgun.
Jóhann Berg Guðmundsson skoraði sigurmarkið í morgun. mbl.is/Golli

Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, fer vel af stað með sínu nýja liði Charlton, en hann skoraði sigurmark liðsins í dag gegn Southend í æfingaleik í morgun sem leikinn var fyrir luktum dyrum.

Jóhann Berg var í byrjunarliðinu og spilaði allan leikinn, en hann skoraði með þrumuskoti utarlega úr teignum þegar sex mínútur voru til leiksloka, lokatölur 1:0. Þetta var jafnframt fyrsta markið sem Charlton skorar á enskri grund á undirbúningstímabilinu.

Stuðningsmenn Charlton voru ánægðir með sinn mann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert