De Boer búinn að framlengja við Ajax

Frank de Boer hefur bundið enda á sögusagnir um framtíð …
Frank de Boer hefur bundið enda á sögusagnir um framtíð sína. AFP

Frank de Boer, þjálfari Kolbeins Sigþórssonar hjá Ajax í Hollandi, hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum við félagið og bundið enda á sögusagnir um að hann væri á förum frá félaginu.

Newcastle var talinn líklegur áfangastaður de Boers í sumar, en sjálfur var hann sagður ætla að sjá til hvernig færi eftir tímabilið. Hann framlengdi hins vegar í dag samning sinn til átján mánaða og er nú samningsbundinn til 1. júlí 2017. De Boer hefur stýrt Ajax síðustu fjögur ár og unnið titilinn heima fyrir í öll skiptin.

„Það er gott að fá þetta á hreint, það gefur mér ákveðinn frið. Ef önnur félög hringja núna í mig eða umboðsmann minn þá mun ég einfaldlega ekki svara,“ sagði de Boer.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert