Matthías lagði upp mark í sigri

Matthías Vilhjálmsson fagnar í búningi Start.
Matthías Vilhjálmsson fagnar í búningi Start. ikstart.no

Start vann öflugan útisigur á liði Haugesund í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, 2:0. Með sigrinum er Start nú sjö stigum frá fallsæti.

Matthías Vilhjálmsson var í fremstu víglínu og hann lagði upp fyrra markið á 50. mínútu fyrir hinn sautján ára Kristoffer Ajer, sem innsiglaði svo einnig sigurinn fimm mínútum fyrir leikslok.

Matthías lék allan leikinn með Start eins og Guðmundur Kristjánsson, en Ingvar Jónsson var ónotaður varamarkvörður liðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert