Fékk boltann í höfuðið – myndskeið

Oscar Hiljemark, leikmaður Svíþjóðar, skallar boltann í leiknum í dag.
Oscar Hiljemark, leikmaður Svíþjóðar, skallar boltann í leiknum í dag. AFP

Það getur verið hættulegt að starfa sem íþróttafréttamaður á vettvangi knattspyrnuleikja. Því fékk Anna Brolin að kynnast þegar hún var við störf á leik Svía og Slóvena í dag. 

Leikmönnum tókst ekki að finna netmöskvana í leiknum og þeim voru einnig mislagðir fætur í hálfleik. Anna fékk þá þrumuskot í höfuðið, en atvikið má sjá í myndskeiðinu hér að neðan. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert