Slæm byrjun hjá Alfreð og félögum

Alfreð Finnbogason í skallaeinvígi í dag.
Alfreð Finnbogason í skallaeinvígi í dag. Ljósmynd/Augsburg

Alfreð Finnbogason lék allan leikinn í framlínu Augsburg sem mátti þola tap gegn Hamburg á útivelli í 1. umferð þýsku 1. deildarinnar í knattspyrnu í dag. Nicolai Müller skoraði sigurmarkið á áttundu mínútu. 

Aron Jóhannsson kom inn á sem varamaður á 87. mínútu fyrir Werder Bremen sem tapaði með sömu markatölu á útivelli gegn Hoffenheim. Andrej Kramarić skoraði sigurmarkið á 84. mínútu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert