Hamarsmenn eru komnir í vænlega stöðu í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil karla í blaki eftir sannfærandi sigur á Aftureldingu, 3:0, í öðrum leik liðanna í Mosfellsbæ í dag.
Staðan er þá 2:0, Hamri í hag, og Hvergerðingar geta því tryggt sér meistaratitilinn á sínum heimavelli þegar liðin mætast þar í þriðja sinn á þriðjudagskvöldið.
Hamar vann fyrstu hrinuna 25:19, aðra hrinu 25:17 og þá þriðju 25:13.