Woods með á Masters-mótinu?

Tiger Woods.
Tiger Woods. AFP/Sean M. Haffey

Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods verður líklega á meðal keppenda á Masters-mótinu í golfi á Augusta National-golfvellinum í Georgíuríki í Bandaríkjunum í næsta mánuði.

Woods hefur lítið keppt undanfarin ár vegna þrálátra meiðsla en er á lista yfir kylfinga sem taka þátt á Masters-mótinu, sem fer fram frá 11. til 14. apríl næstkomandi.

Sjálfur hefur Woods ekki staðfest hvort hann taki þátt í ár.

Woods hefur unnið Masters-mótið fimm sinnum, næstoftast allra. Síðast vann hann það árið 2019 og tók auk þess þátt mótinu á síðasta ári og árið 2022.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert