Grótta deildarmeistari í fyrsta sinn

Leikmenn Gróttu fagna titlinum í leikslok fyrir norðan.
Leikmenn Gróttu fagna titlinum í leikslok fyrir norðan. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason

Grótta varð í dag deildarmeistari kvenna í handknattleik í fyrsta sinn eftir öruggan sigur á KA/Þór fyrir norðan, 32:14.

Þegar ein umferð er eftir er Grótta með tveggja stiga forystu á Fram og hefur betur í innbyrðis viðureignum liðanna. Baráttan um síðasta sætið inn í u´rslitakeppnina er hins vegar hörð á milli Selfoss og HK, sem unnu bæði sína leiki í dag.

Öll úrslit og markaskorara dagsins má sjá hér að neðan.

KA/Þór - Grótta 14:32

Mörk KA/Þórs: Paula Chirila 6, Birta Fönn Sveinsdóttir 4, Arna Valgerður Erlingsdóttir 1, Laufey Lára Höskuldsdóttir 1, Steinunn Guðjónsdóttir 1, Arna Kristín Einarsdóttir 1.
Mörk Gróttu: Laufey Ásta Guðmundsdóttir 7, Lovísa Thompson 5, Sunna María Eianrsdóttir 4, Eva Björk Davíðsdóttir 4, Arndís María Erlingsdóttir 3, Guðný Hjaltadóttir 3, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 2, Karólína Bæhrenz Lárudóttir 2, Ásthildur Embla Friðgeirsdóttir 1, Eva Margrét Kristinsdóttir 1.

FH - Fram 21:26

Mörk FH: Aníta Mjöll Ægisdóttir 9, Heiðdís Rún Guðmundsdóttir 5, Ingibjörg Pálmadóttir 3, Sara Kristjánsdóttir 2, Steinunn Snorradóttir 1, Birta Þöll Sveinbjörnsdóttir 1.
Mörk Fram: Ragnheiður Júlíusdóttir 10, Íris Kristín Smith 6, Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 4, Elísabet Gunnarsdóttir 2, Hekla Rún Ámundadóttir 1, Elva Þóra Arnardóttir 1, Steinunn Björnsdóttir 1, Hulda Dagsdóttir 1.

HK - Fylkir 23:22

Mörk HK: Emma Havin Sardardóttir 12, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 6, Sigríður Hauksdóttir 2, Hulda Bryndís Tryggvadóttir 2, Þórhildur Braga Þórðardóttir 1.
Mörk Fylkis: Thea Imani Sturludóttir 6, Patricia Szölösi 6, Hildur Björnsdóttir 3, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 2, Kristjana Björk Steinarsdóttir 2, Vera Pálsdóttir 2, Sigrún Birna Arnardóttir 1.

Selfoss - ÍR 23:19

Mörk Selfoss: Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 10, Þuríður Guðjónsdóttir 5, Hildur Öder Einarsdóttir 2, Perla Ruth Albertsdóttir 2, Carmen Palamariu 2, Kristrún Steinþórsdóttir 1, Thelma Sif Kristjánsdóttir 1.
Mörk ÍR: Sif Maríudóttir 6, Þorbjörg Anna Steinarsdóttir 4, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 3, Auður Margrét Pálsdóttir 3, Jóhanna Björk Viktorsdóttir 2, Sigrún Ása Ásgrímsdóttir 1.

Haukar - Valur 28:32

Mörk Hauka: Marija Gedroit 12, Karen Helga Díönudóttir 5, Karen Ósk Kolbeinsdóttir 3, Gunnhildur Pétursdóttir 3, Ásta Björk Agnarsdóttir 2, Ragnheiður Ragnarsdóttir 1, Agnes Ósk Egilsdóttir 1, Áróra Eir Pálsdóttir 1.
Mörk Vals: Kristín Guðmundsdóttir 11, Írís Ásta Pétursdóttir 6, Aðalheiður Hreinsdóttir 4, Sigurlaug Rúnarsdóttir 3, Bryndís Elín Wöhler 3, Hildur Marín Andrésdóttir 2, Vigdís Birna Þorsteinsdóttir 2, Alexandra Diljá Birkisdóttir 1.

ÍBV - Stjarnan

Leikskýrsla ekki borist.

Laufey Ásta Guðmundsdóttir skorar eitt af sjö mörkum sínum fyrir …
Laufey Ásta Guðmundsdóttir skorar eitt af sjö mörkum sínum fyrir Gróttu í dag. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert