Lýkur sigurgöngu KR á Króknum?

Pétur Rúnar Birgisson Tindastóli og Michael Craion KR í fyrri …
Pétur Rúnar Birgisson Tindastóli og Michael Craion KR í fyrri leik liðanna í vetur. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Efstu liðin í Dominos-deild karla í körfuknattleik mætast í kvöld á Sauðárkróki. Tindastóll sem er í 2. sæti tekur á móti toppliði KR sem hefur unnið alla þrettán leiki sína í deildinni. Liðið er auk þess ríkjandi Íslandsmeistari. 

Liðin eigast við klukkan 19:15 á Króknum en fjórir leikir eru á dagskrá í deildinni í kvöld klukkan 19:15. 

Leikir kvöldsins:

Grindavík - Stjarnan 

ÍR - Njarðvík 

Fjölnir - Haukar

Tindastóll - KR

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert