Ricky Gervais snýr aftur

Ricky Gervais gerði mikið út á kynþokkann á Emmy verðlaununum.
Ricky Gervais gerði mikið út á kynþokkann á Emmy verðlaununum. mbl.is/AFP

Breski gamanleikarinn Ricky Gervais mun endurtaka hlutverk sitt sem kynnir á næstu Golden Globe verðlaunaafhendingu sem fer fram 10. janúar.

Gamanleikarinn kunni mun snúa aftur eftir þriggja ára pásu, en undanfarin ár hafa Tina Fey og Amy Poehler séð um að kynna verðlaunin, líkt og fram kemur á vef Daily Mirror.

Talsmaður NBC segist glaður yfir endurkomu Gervais.

„Við erum mjög spennt yfir því að Ricky Gervais muni snúa aftur til að vera kynnir á skemmtilegustu verðlaunaafhendingu tímabilsins. Hann mun sinna starfinu eins og honum einum er lagið.“

„Ricky mun heiðra það besta sem kvikmyndir og sjónvarp hafa upp á að bjóða með sínum óvægna og óvænta hætti. Festið sætisólarnar.“

Gervais, sem var kynnir hátíðarinnar á árunum 2010-2012, staðfesti fréttirnar með færslu á Twitter-síðu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson