Tillaga um sameiningu Saurbæjarhrepps, Reykhólahrepps og Dalabyggðar var samþykkt í Dalabyggð og Saurbæjarhreppi en felld í Reykhólahreppi. Þarf því væntanlega að kjósa aftur í Reykhólahreppi innan sex vikna.
Í Saurbæjarhreppi var 61 á kjörskrá. 42 kusu eða 68,85%. Já sögðu 21. Nei sögðu 17. Auðir og ógildir seðlar voru 4.
Í Reykhólahreppi voru 195 á kjörskrá. 122 kusu eða 62,56%. Já sögðu 38. Nei sögðu 84.
Í Dalabyggð var 481 á kjörskrá. 267 kusu eða 55,5%. Já sögðu 163. Nei sögðu 97. Auðir og ógildir seðlar voru 7.