Heppinn aðili vann 2. vinninginn í Eurojackpot. Dregið var út nú í kvöld. Fær hann tæpar 104 milljónir króna í sinn hlut. 1. vinningur var um 5,7 milljarðar en enginn hlaut hann í þetta skiptið.
Miðinn með 2. vinningnum á var keyptur í Kiel í Þýskalandi.
Einn Íslendingur vann 2. vinning fyrir jókertölur og fær hann 100 þúsund krónur í sinn hlut. Var sá miði keyptur í Shellstöðinni á Laugavegi í Reykjavík.